Game overArna Þöll Hjartardóttir
Ég er hætt að bloggaÉg má aldrei vera að þessu
Of mikið að gera
Kv.
Addabesta ofvirka
BORGARNESArna Þöll Hjartardóttir
Þá er komið að því....Borgarnesmótið í fótbolta er næstu helgi.
Það er mikil tilhlökkun og spenna hjá örverpinu á bænum sem æfir fótbolta af harðfylgi til að komast í Borgarnes.
Við gömlu hjónin förum bara tvö með Helga
Við förum ekki 5 eins og venjulega
Ég þarf að læra að búa til nesti fyrir 3 einstaklinga sem borða bara stundum og svo er líka hægt að borða í sjoppunni.
Ég er vön að smyrja nesti handa 5 manns 4 fullorðnum og einum krakkaormi
Ég verð að gera mér grein fyrir að ég þarf ekki að smyrja 30 samlokur fyrir helgina heldur kannski bara 5
Ég þarf ekki að kaupa 4 pakka af grillkjöti, kannski bara 1
Ég þarf ekki að hafa jafn mikið nammi og rúmast í einni sjoppu, kannski bara Góu Þrennu.
Ég þarf ekki að taka með mér 3 stór kælibox, kannski bara 1
Ég þarf ekki að kaupa 6 lítra af kók, kannski bara 1
Ég þarf ekki að fara með 4 stóra ruslapoka fulla af sængum og koddum, kannski bara 1
En sumt verð ég taka með mér hvort sem við erum 3 eða 5 og það er:
TJALDVAGNINN, BÍLLINN OG HUNDURINN
Leikfélag eða ekki leikfélagArna Þöll Hjartardóttir
Sjaldan er ein báran stök....Ég tilkynnti á aðalfundi Leikfélags Rangæinga um daginn að ég ætlaði ekki að vera með á næsta leikári
Þetta eru nú ekki frétti nema út af því sem kom á eftir......
Það var hringt í mig (sem framkvæmdastjóra leikfélagsins) út af einhverri 200 ára fæðingarhátið Tómasar Sæmundssonar (sem ég vissi ekkert hver væri) og leikfélagið beðið um að koma með ca. 2 til 3 konur og vera í peysufötum og ganga um beina í kaffinu á hátíðinni.
Við Margrét Tryggva fórum á kynningarfund út af þessu og þá kom í ljós að það átti að setja upp leikrit um þennan Tómas og leikstjóri og höfundur verksins var engin önnur en Guðrún Ásmundsdóttir leikkona.
Á fundinum kom í ljós að það vantaði sögumann og spurði Guðrún mig hvort ég væri til í það og ég sagði auðvitað bara "já"
Síðan voru 5 æfingar og áður en yfir lauk þá var ég látin leika Jón vinnumann og síðast en ekki síst þá endaði með því að ég var farin að syngja í leikritinu líka. Sýningin var svo á laugardaginn var.
Þetta gekk mjög vel nema að ég ruglaðist aðeins... ég átti að segja Breiðabólstaðarkirkja (sem er í Fljótshlíð og leikritið var sett upp þar) en ég náttúrulega BARA STRESSUÐ og sagði Bólstaðarhlíðarkirkja (sem er í Húnavatnssýslu) En þetta var eina klúðrið mitt. Ég var reyndar svo stressuð að ég hélt að það myndi líða yfir mig áður en ég átti að byrja að lesa. Hjartað ætlaði út úr bringunni á mér og rifbeinin víbruðu. Þá mundi ég allt í einu af hverju ég vil frekar vera framkvæmdarstjóri leikfélagsins en ekki leika en... það var of seint að hætta við.
Ég varð að byðja Dóms og Kirkjumálaráðherra Björn Bjarnason og standa upp úr sæti sínu og færa sig því þetta væri frátekið fyrir mig.
Hann hefur ábyggilega haldið að sætið væri frátekið fyrir hann
(það voru svona FRÁTEKIÐ miðar í sætunum sem leikararnir áttu að sitja í... en ekki framámenn þjóðarinnar.)
Svo fór ég í dag í súpu til formanns þessa nefndar sem skipulagði þetta allt og þar var talað um að fara með þetta stykki til Kaupmannahafnar SPÁIÐ Í ÞAÐ.
Svo var mér hrósað fyrir að þora að vísa Dóms og Kirkjumálaráðherra úr sæti það þótti víst mjög djarft.
Mér fannst þetta ekkert djarft HANN VAR Í MÍNU SÆTI
Svo endaði súpuhátíðin á því að við vorum beðin að vera með í uppsetningu Skagfirðinga næsta föstudag á La Travíata í Sögusetrinu.
Auðvitað sögðum við JÁ við því
Þannig að....
Að vera eða vera ekki í leikfélagi.
Mont, mont, montArna Þöll Hjartardóttir
Af því að allir vita að ég er athyglissjúklingur þá ætla ég aðeins að monta mig núna.
Ég fór á Sjámannadagsskemmtun á laugardaginn niður í Grandavör í Landeyjum
Ég er reyndar fúl yfir hvað fái sáu sér fært að mæta, sérstaklega þegar ekki mikið er um að vera í þesu sveitarfélagi og fólk kvartar óspart undan því, og svo þegar einhver tekur sig til og gerir eitthvað sniðugt þá mætir enginn en svona er þetta nú bara og það var ekki þetta sem ég ætlaði að tala um í þessu bloggi svo að......
Nú hefst montræðan mín.
Í Grandavör voru flöskuskeyti út um allt svæðið
Fólk átti að finna flöskuskeytin en í þeim voru fyrripartar og fólkið átti að botna vísurnar sem voru í flöskuskeytunum. (Ég og tvær aðrar manneskur voru fengin til að búa til þessa fyrriparta)
Síðar um kvöldið voru svo veitt verðlaun fyrir bestu vísurnar.
Benni hennar Erlu Berglindar fann flöskuskeyti og kom hlaupandi til mömmu sinnar og bað hana um að hjálpa sér að botna fyrripartinn (sem var eftir mig)
Erla fölnaði og henni féllust hendur því hún virtist ekki kunna að yrkja.
Ég (af einskærri góðmennsku minni) bauðst til að hjálpa Benna. Ég sauð saman seinnipart í kvelli og Erla skilaði vísunni með nafni Benna.
Svo var Emil Þórðar að vomast með fyrripart og vissi ekki alveg hvað hann átti að gera þannig að ég, (af einskærri góðmennsku minni) bauðst til að hjápa Emil. Ég sauð saman annan seinnipart í kvelli og merkti vísuna með nafni Emils og sagði honum að hann ætti verðlaunin ef hans nafn yrði dregið.
Seinna um kvöldið voru svo valdar 2 bestu vísurnar og vitiði bara hvað
Verðlaunin hlutu: Benedikt Óskar Benediktsson og Emil Þórðarson :)
Daníel Anton tók við verðlaununum fyrir hönd bróður síns og ég var kölluð upp til að taka á móti verðlaununum fyrir Emil
Síðan fór ég í morgun og afhenti Emil verðlaunin sín og hann varð ekkert smá hissa og glaður.
Þannig var nú montræðan mín þessa vikuna
Kv.
Adda besta vísnatilbúari.
Börn eru besta fólk!Arna Þöll Hjartardóttir
Ég er að springa af stoltiStrákarnir eru allir 3 búnir að fá einkunnirnar sínar eftir veturinn og vitiði bara hvað....?
Við Baldur erum að springa úr stolti
Orra gekk vel í FSU og hann sér fyrir endalokin á þessu og stúdentsprófið nálgast óðfluga.
Ívari gekk vel í Hvolsskóla, var að klára 10. bekk og gekk mjög vel í samræmdu prófunum, öllum til mikillar gleði.
Helga gekk vel í 2. bekk og á ekki nema 8 ár eftir í Hvolsskóla. Hann er ekki að trúa því að hann sé á leið í 3. bekk eftir 3 mánuði (honum finnst krakkar í 3. bekk nebbla svo stórir krakkar og hann er alveg að verða eins og þeir.)
Börnin okkar eru heilar........
Ég var búin að kvíða mjög mikið fyrir þessu öllu saman en alltaf er lífið að koma manni skemmtilega á óvart.
Ekki það að ég hafi ekki trú á strákunum
Þeir eru bara ekkert að ræða námið eða að sýna því einhvern sérstakan áhuga og ég hélt að þetta væri allt í lamasessi hjá þeim en viti menn........
Þeir stóðu sig allir eins og hetjur
Þeir fengu Pizzu í kvöldmatinn í tilefni þessa frábæra árangurs og þeim fannst við frábærir foreldrar að splæsa í pizzu.
Því segi ég það enn og aftur og stend við það....
BÖRN ERU BESTA FÓLK (og þá sérstaklega mín börn)
Kv.
Adda besta sem er að rifna af stolti.
Stund milli stríðaArna Þöll Hjartardóttir
Jæja....Nú kom að því
Ég hef ekkert að segja og ekkert að gera.
Skólinn minn búinn, Ívar kominn heim, skólinn hjá strákunum búinn í næstu viku
Þá er bara sumar og sæla framundan (vonandi)
Þessi venjulegu heimilisverk verða áfram viðloðandi þrátt fyrir sumarið (því miður)
Orri og Ásgeir voru að keppa á móti hvoru öðrum í fótbolta á föstudaginn og Hamar vann (því miður)
Dóra og Ásgeir voru hérna fram á laugardag og vitiði bara hvað?.....
Ég bakaði pönnukökur handa öllu liðinu en það er nú ekki allt
Mér fannst sanngjarnt að á meðan ég bakaði þá myndi einhver ryksuga húsið á meðan
(Baldur var á fullu að taka til í garðinum)
Dóra var að taka til í eldhúsinu á meðan, Ívar var að vinna og
Orri fær alltaf í magann ef hann þarf að gera eitthvað á heimilinu og hann lét sig hverfa á klóði þannig að....
ÁSGEIR RYKSAUG ALLT HÚSIÐ...
Ég er að spá í hvort hann geti ekki verði aupair hjá okkur í sumar þetta var svo vel gert hjá honum.
Annars er ekkert að frétta héðan úr sveitasælunni.
(Bara 2 mánuðir í spánarferð) einu sinni voru 6 mán, þetta er allt að gerast.
Kv.
Adda besta sem lifir ofurvenjulegu lífi þessa dagana.
Nóg að geraArna Þöll Hjartardóttir
Núna er skólinn búinn og ég búin að kvíða því að hafa ekkert að gera en vitið þið bara hvað?það er brjálað að gera.
Ívar er að fara til Danmerkur á mánudaginn næsta,
Ég er búin að endurnýja debetkortið,
sækja nýjan passa,
virkja símafrelsið í símanum hans svo hann geti hringt í mömmu á meðan hann er úti (ekki eins og hann eigi það eftir haha),
sækja um heilsugæslukort,
tryggja hann aukalega hjá Sjóvá,
og redda gjaldeyri
Það er ekkert smá mál að senda einn krakka til útlanda
Svo er ég loksins búin að selja VÍS Hundayinn minn og búin að kaupa mér jeppa í staðin.
Búin að vera að garfa í því að fá bílatryggingarnar af Hundayinum endurgreiddar og loksins gerðist það en viti menn....
Ég fékk þær endurgreiddar tvisvar inn á reikninginn minn (á ég að skila því?)
Já smá grín auðvitað endurgreiddi ég aðra endurgreiðsluna.
Þetta er nóg í bili
Kv.
Adda besta sem hefur nóg að gera.
Smá leiðréttingArna Þöll Hjartardóttir
Sko...Ég var aðeins of bráð að segja ykkur hvaða einkunnir ég fékk
Ég fékk nebbla ekki 9 í upplýsingatækni eins og ég hélt
ÉG FÉKK 10
1X8
2X9
1X10
Húrra, bravó, jibbý og allt
En ég lofa að fara að blogga fljótlega um eitthvað annað en einkunnirnar mínar
Þetta er að verða svolítið einhæft.
Kv.
Adda besta sem þokkalega sátt með einkunnirnar sínar en ekki meira um það.
Ekki alveg að gera sig, en samt.....Arna Þöll Hjartardóttir
Ekki eru nú hlutirnir alltaf eins og maður vill hafa þáÉg fékk ekki 10 í vélritun, ég fékk 9
Ég fékk 10 í hraðaprófinu sem gildir 60% ég var með 1291 slag á 5 mínútum i báðum prófunum (2x5 mín)
Ég gerði sama textann tvisvar sinnum í 5 mín. og ég stoppaði í bæði skiptin á sama stað í sama staf, spáið í það, nákvæmlega jafnmörg slög, mér finnst það mjög sniðugt.
Og ég var með 5 villur í annað skiptið og 2 villur í hitt skiptið og það sem er betra er notað til útreiknings.
En verslunarbréfið mátti vera með 4 villum en mér tókst að gera 7 villur þannig að ég fékk 0 fyrir það.
Svo skilaði ég öllum verkefnunum í vetur og það gildir 30%
Þannig að bréfið gilti 10%
Ég brjálaðist í gær þegar ég vissi þetta (sko yfir bréfinu og að fá ekki 10)
Ég skrifaði kennaranum bréf og bað hann að senda mér bréfið til að sjá villurnar
Aumingja kennarinn gerði það nú fyrir mig og viti menn...
Ég sá að villurnar voru ekki uppsetningarvillur heldur ásláttarvillur og 100% klaufa og flubrugangur í mér, ég las ekki textann yfir heldur einblýndi ég bara á uppsetninguna, þannig að ég er bara mjög sátt með þetta allt saman í dag.
Vildi bara láta ykkur vita
Þannig að ég enda með þrjár 9 og eina 8 eftir önnina.
(bara svo þið séuð viss)
Kv.
Adda besta með þrjár 9 og eina 8
Ég verð að monta mig...Arna Þöll Hjartardóttir
Jæja hér er ég komin aftur
Ég er búin að fá einkunnir úr 3 af fjórum fögum í VMA
Upplýsingatækni, lokaeinkunn: 9
Tjáning, lokaeinkunn: 9 (fékk 10
í myndbandsverkefni þar sem ég flutti ræðu)
Tölvufræðin:, lokaeinkunn: 8
Ég er ekki búin að fá einkunn úr vélritun en þar ÆTLA ég að fá 10.
Ég er mjög sátt við þessar einkunnir
Eitt enn...
Þegar ég pantaði ferði til Spánar fyrir alla fjölskylduna voru 6 mánuðir (hálft ár, geggjað langur tími) þangað til við færum
En.....
Núna eru ca. 12 vikur þangað til við förum
Vá við erum bara alveg að fara, ég verð að fara að pakka niður og græja og gera.
Ég varð að endurnýja passana fyrir Helga og Ívar því Helgi var 3ja ára í gamla passanum en er núna að verða 8 ára
Ívar var 12 ára (alger dúlla) en er núna 16 ára. (smá breyting) það hefði enginn trúað því að þetta væru þeir á myndunum.
Annars allt gott að frétta.
Kv.
Adda besta með bláan lokk í hárinu (það eru jú að koma kosningar)